Ölgerðin Egill Skallagrímsson hyggst bjóða öllum fastráðnum starfsmönnum að fá að gjöf hluti í fyrirtækinu samhliða skráningu félagsins á markað.

Hlutafjárgjöfin verður í hlutfalli við starfsaldur og starfshlutfall. Mest fá þeir sem eru í fullu starfi og starfað hafa hjá félaginu í fimm ár eða lengur, eða 500 þúsund króna hlut. Áætlaður kostnaður fyrirtækisins við gjöfina til starfsmanna nemur um 170 milljónum króna.

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir í samtali við Viðskiptablaðið það vera mikinn styrk að fá alla starfsmenn fyrirtækisins í hluthafahópinn.

Til stendur að skrá Ölgerðina í kauphöllina í byrjun júní þar sem félagið verður metið á um 25 milljarða króna. Fundaröð með fjárfestum hefst í dag sem stendur fram í næstu viku. Bjóða á bæði almenningi og fagfjárfestum að kaupa hluti í félaginu í útboði sem ráðgert er að hefjist eftir um tvær vikur.