Birtingahúsið hefur ráðið til sín Ólaf Jónsson sem mun sinna ráðgjöf og þróunarvinnu í tengslum við netmarkaðsmál fyrir viðskiptavini félagsins. Greint er frá ráðningu Ólafs í fréttatilkynningu.

„Ólafur, eða Óli Jóns, eins og hann er oftast kallaður, hefur um langt skeið unnið við ráðgjöf og kennslu á sviði netmarkaðsmála.
Auk þess hefur hann síðustu árin haldið úti vinsælu hlaðvarpi um markaðsmál og viðskiptalíf sem mun halda áfram í hans umsjá. Óli var á árum áður meðal annars ráðgjafi hjá Netráðgjöf og Reykjavík Excursions áður en hann fór út í eigin rekstur,“ segir í fréttatilkynningu.

„Við erum mjög lukkuleg með að hafa fengið Óla til liðs við okkur. Hann er öflugur og mjög reynslumikill markaðsmaður sem verður skemmtileg viðbót í okkar liðsheild. Framundan eru áhugaverð verkefni og nýjungar sem verður gaman að fá að kynna fyrir okkar samstarfsaðilum og markaðnum,“ er haft eftir Huga Sævarssyni, framkvæmdastjóra Birtingahússins.

„Það er virkilega spennandi að vera kominn í þetta umhverfi sem Birtingahúsið starfar í. Fyrirtæki sem ég hef fylgst vel með í gegnum tíðina og verið leiðandi á sínu sviði. Félagið vinnur með metnaðarfullum og framsæknum viðskiptavinum og það verður gaman að fá að kynnast þeim og leggja mitt af mörkum,“ segir Óli Jóns.