Olís hefur opnað nýja hraðhleðslustöð fyrir rafbíla á þjónustustöð félagsins á Reyðarfirði. Hraðhleðslustöðvar Olís eru þar með orðnar fjórar; í Álfheimum í Reykjavík, á Höfn í Hornafirði, Siglufirði og Reyðarfirði.

„Fjölgun hraðhleðslustöðva er liður í aukinni þjónustu fyrir okkar viðskiptavini. Rafbílum fer ört fjölgandi og við viljum að sjálfsögðu fylgja rafbílaþróuninni eftir og geta boðið rafbílaeigendum að hlaða bíla sína á þjónustustöðvum Olís," segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís.

„Við bjóðum upp á hraðvirkar og notendavænar hraðhleðslustöðvar þar sem aðgengi er þægilegt og snyrtilegt. Það er ánægjulegt að opna nýja hraðhleðslustöð á Reyðarfirði sem er mikilvæg stöð fyrir okkur. Með henni komum við til móts við rafbílaeigendur á Reyðarfirði og nágrenni og fleiri sem munu ferðast á rafbílum um Austurland. Olís hefur um árabil unnið skipulega að umhverfismálum og fjölgun hraðhleðslustöðva er hluti af Grænum skrefum Olís.“

Tímagjaldið á hraðhleðslustöðvum Olís (50 kW) er nú 45 kr. kWst. Mínútugjaldið byrjar að telja eftir 30 mínútur frá upphafi hleðslu og er þá 10 kr./mín.

Tímagjaldið á hæghleðslustöðvum Olís (22kW) er nú 23 kr. kWst og mínútugjaldið er 1 kr./mín. eftir fyrstu 30 mínúturnar. Mínútugjaldið byrjar því ekki að telja fyrstu 30 mínúturnar í hleðslu bæði á hrað- og hæghleðslustöðvum Olís.