Hagnaður olíurisans BP, að undanskildum einskiptisáhrifum vegna eignasölu, nam 4,8 milljörðum dollara á fyrsta fjórðungi þessa árs, sem er töluvert undir væntingum. Kemur þetta einkum til vegna þess að framleiðsla fyrirtækisins hefur dregist saman eftir olíuslysið í Mexíkó-flóa sumarið 2010.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að framleiðsla muni halda áfram að minnka á öðrum ársfjórðungi og leiddi það til lækkunar á gengi hlutabréfa BP. Það sem af er ári hefur gengið lækkað um 8,9%, samanborið við 1,8% meðallækkun á gengi hlutabréfa sambærilegra fyrirtækja.