Olíuverð á heimsmarkaði hefur haldið áfram að lækka í dag. Hjá Brent í London var verðið skráð nú fyrir nokkrum mínútum á 59,98 dollara tunnan, en hefur farið lægst innan dagsins í 59, 58 dollara og hæst í 61,44 dollara á tunnu. Á NYMEX markaði í Bandaríkjunum var verðið 59,51 dollar fyrir stundu, en hefur farið lægst í 58,72 dollara á tunnu.