Heimsmarkaðsverð á olíu hefur tekið nokkra dýfu í dag eftir talsverðar hækkanir undanfarna daga. Á NYMEX í New York lækkaði verðið úr 49,66 dollurum í gær í 47,86 dollara tunnan. Lægst fór verðið þó í 47,30 dollara í dag og nam lækkunin 3,62%.

Hjá Brent í London hafði olíuveríð fallið úr 49,23 dollurum í gær í 47,57 dollara í dag.