Verð á olíu er komið yfir 80 dollara tunnan hjá  WTI á hrávörumarkaði NYMEX í New York. Sem stendur er verðið 80,24 dollarar. Þar fór verðið hæst í 80,51 dollar í dag, en opnunarverðið í morgun var 79,24 dollarar. Á markaði í London er verðið nú 78,35 dollara fyrir tunnuna. Þar hefur verðið farið hæst í 78,92 dollara, en opnunarverðið í morgun var 77,50 dollarar á tunnu.