Heimsmarkaðsverð á olíu hefur fallið að nýju í dag eftir hækkanir undanfarinna daga á hrávörumörkuðum í London og New York. Hjá Brent í London var verðið 71,64 dollara við opnun en var nú fyrir nokkrum mínútum 70,61 dollar tunnan. Svipaða sögu er að segja hjá NYMEX í New York. Þar var opnunarverðið 72,43 dollarar, en nú er verðið 71,53 dollarar tunnan.
Virðist þetta vera í takt við orð sérfræðingar sem fullyrt hafa að hækkunin að undanförnu væri bóla sem blásin væri upp af spákaupmönnum. Engar raunverulegar forsendur væru á markaðnum fyrir verðhækkunum á síðustu vikum.