Olíuverð hefur haldið áfram að lækka í dag. Mest varð lækkunin í byrjun dags, en á þriðjudag lækkaði olíuverð einnig mikið. Þegar þetta er skrifað hefur verð á olíutunnu á Bandaríkjamarkaði lækkað um 5,5 dali, eða tæplega 4% í dag.

Olíubirgðir Bandaríkjanna jukust í 3 milljónir tunna í síðustu viku, þvert á spár greiningaraðila sem höfðu búist við minnkun upp á 2,1 milljón tunna.