Verð á hráolíu er aftur komið yfir 102 dali en eins og áður hefur verið greint frá er ljóst að OPEC ætlar ekki að auka framleiðslu sína.

Olíuverð er nú komið í 102,54 bandaríkjadali í New York og hefur hækkað um 3% í dag. Þá hækkaði verð á Brent hráolíu einnig í dag á mörkuðum í London um 2,5% og fór í 99,91 dali.

Olíuverð hefur hækkað um 71% á einu ári.