Olíuverð heldur áfram að lækka á heimsmarkaði og er marsverð nú komið í 34,50 dollara tunnan á NYMEX markaði í New York. Við opnun var verðið skráð á 35,02 dollara og hefur farið hæst innan dagsins í 35,15 dollara en lægst í 34,43 dollara tunnan.

Verð á markaði hjá Brent í London í framvirkum samningum vegna sölu í apríl er nú skráð 41,04 dollarar tunnan, en hefur farið lægst það sem af er degi í 40,30 dollara.