Olíuverð heldur áfram að hríðfalla á heimsmarkaði. Þessa stundina er verðið skráð hjá Brent Crude Oil í London á 74,91 dollara tunnan og 69,90 dollara hjá WTI Crude Oil í New York. Mun ótti við afturkipp í efnahagsbata Evrópu og samdrátt í samgöngum m.a. valda lækkunum á hrávöruverði eins og olíu.