Hækkun varð á Bandaríkjamarkaði annan daginn í röð. Bréf hrávöruframleiðenda hækkuðu í kjölfar hækkunar olíuverðs og ný skýrsla sem sýnir óvænta fjölgun starfa í Bandaríkjunum hafði góð áhrif á markaði.

Nasdaq vísitalan hækkaði um 0,4% í dag. Dow Jones hækkaði um 1,6% og Standard & Poor´s hækkaði um 1,7%.

Olíuverð hækkaði eins og fyrr sagði, um 4,0% og kostar olíutunnan nú um 127 Bandaríkjadali.