Heims­markaðs­verð á olíu hækkaði í dag vegna fram­virka samninga en fjár­festar virðast vera gíra sig upp fyrir OPEC+ (Sam­tök olíu­flutnings­landa og banda­menn þeirra) fundinn um helgina.

Vestur Texas hrá­olíu­verðið hækkaði um 1,7% og stendur olíu­tunnan í um 71.32 Banda­ríkja­dölum

Brent hrá­olíu­verð hækkaði einnig um 1,7% og fer olíu­tunnan í 75.53 Banda­ríkja­dali

Verð á Ny­mex hrá­olíu fór upp um 1,6% og kostar gall­on af hrá­olíu 2,4 Banda­ríkja­dali.

Ef litið er á vikuna í heild er Brent olía og Vestur Texas hrá­olía að falla um tvö prósent eftir verð­hrun í maí. Á­stæður þess eru taldar eiga rætur sínar að rekja í mögu­legt greiðslu­falls banda­ríska ríkisins.

Eftir að öldunga­deildinni sam­þykkti hækkun skulda­þaksins í gær fór á­hugi fjár­festa hratt að snúast um OPEC+ fundinn en vonir standa til dregið verði úr fram­leiðslu eftir fundinn.