Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði um 1% í dag, en í gær var olíuverð það lægsta sem það hafði verið í um 11 ár.

Verð á Brent hráolíu hækkaði um 29 sent og seldist á 36,64 dali á tunnuna. Texas hráolía hækkaði um 34 sent og seldist á 36,15 dali á tunnuna. Olía hefur lækkað um 35% frá síðustu áramótum. Olíuverð fór hæst yfir 100 dali síðasta sumar. Síðan þá hefur verðið lækkað um rúm 60%.