Talsverð lækkun hefur orðið á heimsmarkaðsverði á hráolíu í dag en tunnan af Brentolíu kostar nú 118,15 dali og hefur lækkað um rúma 2 dali, 1,67%, það sem af er degi. Þá hefur verð á hráolíu af svæðinu umleikis Mexíkóflóa lækkað um rúman dal í dag, 1%, og kostar nú 98,34 dali samkvæmt vef Bloomberg.