Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað lítillega það sem af er degi samkvæmt upplýsingum á vef Bloomberg. Verð á Brentolíu hefur lækkað um 1% og kostar tunnan nú 104,6 dali og verð á WTI-olíu hefur lækkað um 0,75% og kostar tunnan nú 81,97 dali. Mikil hækkun varð á olíuverði í gær og er enn talsvert eftir af henni.