Olíuverð á heimsmarkaði hækkar nú óðfluga og er komið í rúma 89 dollara á tunnuna á hrávörumarkaði í London. Var verðið þar skráð á 87,44 dollara við opnun í morgun. Athygli vekur að markaður í New York hefur ekki fylgt hækkunum eftir jafn ört, en þar er verðið nú skráð á 86,6 dollara tunnan og var við opnun markaðar í morgun skráð á 86,20 dollara.