Olíuverð er nú komið yfir 93 dollara á tunnu á hrávörumarkaði í London. Er verðið sem stendur í 93,27 dollurum tunnan en hefur farið hæst í dag í 93,43 dollara. Hjá WTI Crude Oil í New York er verðið skráð 89,53 dollarar á tunnu.