Olíuverð í framvirkum samningum til afgreiðslu í september hefur lækkað á mörkuðum austan hafs og vestan í dag. Þannig hefur olíuverðið á Brent í London lækkað úr 70,57 dollurum í 69,48 dollara tunnan. Á markaði í New York hefur verðið lækkað í dag úr 68,26 dollurum í 66,60 dollara tunnan.