Nokkrar umsóknir hafa nú þegar borist til Íbúðalánasjóðs vegna kaupa á skuldabréfum  af fjármálafyrirtækjum sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði en óljóst er á þessari stundu hver heildarfjárhæð kaupanna verður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóð en vegna þessara fyrirhugaðra kaupa gerði Íbúðalánasjóður, við gerð fjárlaga fyrir árið 2009, tillögu um að hann fái heimildir til útgáfu íbúðabréfa til kaupa á skuldabréfum fyrir allt að 100 milljarða króna í þessu skyni.

Þá kemur fram í tilkynningunni að í greinargerð með fjárlagatillögum Íbúðalánasjóðs var gerður fyrirvari við þessa fjárhæð þar sem nokkur óvissa ríkir um heildarfjárhæð skuldabréfa sem Íbúðalánasjóði kunna að vera boðin til kaups.

„Því er ljóst að kaupin geta orðið minni eða meiri en fjárlögin gera ráð fyrir,“ segir í tilkynningunni.

„Íbúðalánasjóður vinnur nú að því að ganga frá samningum vegna þeirra umsókna sem þegar hafa borist sjóðnum og munu upplýsingar þess efnis verða tilkynntar til markaðsaðila þegar þær liggja fyrir.“