Stjórnendur Vísis skoða nú þann möguleika að flytja alla fiskvinnslu fyrirtækisins í áföngum til Grindavíkur en vinna um leið að uppbyggingu nýrra starfa í hinum bæjarfélögunum þremur. Línuveiðibátum fyrirtækisins verður fækkað úr fimm í fjóra. Sjómönnum útgerðarinnar mun fækka lítillega þar sem áhafnir verða sameinaðar.

Á liðnum árum hefur Vísir hf. byggt upp starfsemi á Djúpavogi, Þingeyri og Húsavík til viðbótar starfsemi fyrirtækisins í Grindavík. Á hverjum þessara staða starfa um 50 manns, bæði fólk með fasta búsetu á svæðunum og verkafólk sem auðveldara á með að færa sig um set.

Í tilkynningu frá Vísi segir að miklar breytingar hafi orðið á mörkuðum erlendis fyrir íslenskan fisk. Afurðaverð hafi lækkað um 20% og síauknar kröfur séu gerðar um ferskan fisk, sveigjaleika í framleiðslunni og skjóta afgreiðslu pantana.

Áform stjórnenda Vísis eru að færa allan tækjabúnað fyrirtækisins á einn stað. Þannig verður sveigjanleiki í starfseminni meiri og framleiðni eykst því auðveldra verður að stýra framleiðslunni í verðmætustu afurðaflokka hverju sinni og  bregðast við kröfum erlendra fiskkaupenda. Fyrirtækið telur Grindavík kjörin stað fyrir fiskvinnsluna meðal annars vegna nálægðar við alþjóðaflugvöll og útflutningshöfn.

Markmiðið með ofangreindum hugmyndum er að styrkja fyrirtækið, gera það samkeppnishæfara og tryggja sem best að starfsfólk Vísis og fjölskyldur þeirra geti treyst á fyrirtækið til langframa sem öruggan og traustan vinnustað.