Vegna fréttar á vísir.is í dag þess efnis að greiðslukortum Íslendinga á Fjóni hafi verið lokað, vill Valitor koma á framfæri að ekki var um íslensk VISA kort að ræða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor.

„Við skoðun kom í ljós að öll greiðslukortaviðskipti með íslenskum VISA kredit eða debet kortum erlendis hafa gengið eðlilega og fréttir af hnökrum sem komið hafa upp hafa átt sér aðrar skýringar en vegna þess ástands sem verið hefur hér undanfarna daga,“ segir í tilkynningunni.

„Valitor mun eftir sem áður leggja megin áherslu á að öll greiðslukortaviðskipti gangi eðlilega.“