Dótturfélag Dagsbrúnar, Daybreak Acquisitions Limited gerði í dag samning um kaup á 4.000.000 hluta í Wyndeham Press Group PLC ("Wyndeham") sem svarar til 7,69% af útistandandi hlutafé félagsins að því er kemur fram í tilboði til Kauphallarinnar.

Í kjölfar framgreindra kaupa er tilboðið ekki lengur háð skilyrðum sem greint var frá í yfirtökutilboði til hluthafa þann 24. mars 2006.

Dagsbrún tilkynnir að Daybreak hafi fengið skuldbindandi samþykki frá hluthöfum Wyndeham, keypt á markaði eða gert samning um kaup á 49.141.919 hlutum í Wyndeham. Eignahlutur Daybreak er því 94,5% af útgefnu hlutafé í Wyndeham.

Hluthafar hafa frest til 23. maí 2006 til að samþykkja tilboðið frá 24. mars. Eftir það mun Daybreak nýta sér heimild til innlausnar þeirra hlutabréfa sem það hefur ekki þegar eignast.