Öllum átján starfsmönnum Sambíóana á Akureyri, Nýja bíó, hefur verið sagt upp störfum, að því er kemur fram í frétt Vikudags . Alfreð Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóana, segir ástæðuna vera fyrirhugaðar breytingar á starfseminni, uppsagnirnar séu liður í þeim efnum og ekki standi til að loka bíóinu. Aðspurður segir Alfreð óvíst hversu margir starfsmenn verða ráðnir aftur til starfa. Misjafnt er hvenær uppsagnirnar átján taka gildi, flestir hafa þriggja mánaða uppsagnarfresti.

„Við lítum alvarlegum augum á allar uppsagnir þegar um svona stóran hóp er að ræða,“ segir Eiður Stefánsson, hjá Félagi verslunar skrifstofufólks á Akureyri og nágrenni í samtali við Vikudag. „Á meðan þetta er gert löglega og farið eftir kjarasamningum er lítið hægt að segja við þessu.“

Í september var öllum starfsmönnum Sambíóa á Selfossi sagt upp og kvikmyndahúsinu lokað. Ástæðan var sögð vera sú að vélbúnaður í bíóinu var kominn til ára sinna. Ólíkt því sem gert var á Selfossi er þó ætlunin að halda bíóinu á Akureyri gangandi.