Bráðabirgðastjórn VBS fjárfestingarbanka hf. hefur ákveðið að segja upp öllum starfsmönnum bankans.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en bráðabirgðastjórnin fer þess á leit við starfsmennina að þeir vinni út umsaminn uppsagnarfrest eða þar til annað verður ákveðið.

Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort einhverjir eða allir starfsmenn verði endurráðnir.

Sem kunnugt er varð Fjármálaeftirlitið (FME) við beiðni stjórnar VBS fjárfestingabanka að skipa bankanum bráðabirgðastjórn í byrjun mars, þar sem bankinn gat ekki staðið við skuldbindingar sínar.

Hróbjartur Jónatansson hrl. er formaður stjórnar, Þórey S. Þórðardóttir hrl. á einnig sæti í stjórn sem og Friðbjörn Björnsson endurskoðandi.