Öllum flugþjónum Iceland Express hefur verið sagt upp störfum nú þegar Wow Air hefur tekið fyrirtækið yfir. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Skúli Mogensen, forstjóri Wow Air, segir að einhverjir starfsmenn verði ráðnir aftur og því sé ekki hægt að segja með vissu hversu margir missa vinnuna. Starfsfólkið hafði ekki farið í lofti síðan Wow tók yfir rekstur Iceland Express.

Starfsmannaviðtöl fóru fram í gær og munu halda áfram í dag, samkvæmt upplýsingum vb.is.