Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur á ný hafið lyfjameðferð við krabbameini, en við reglubundið eftirlit í lok síðasta árs kom í ljós hækkun á svokölluðum æxlisvísum í blóði, sem mæla framgang og stöðu krabbameins. Greinir Ólöf frá þessu á Facebook.

Færsla Ólafar í heild sinni:

Kæru vinir.

Við reglubundið eftirlit í lok síðasta árs kom í ljós að hækkun hafði orðið á svokölluðum æxlisvísum í blóði sem mæla framgang og stöðu krabbameins. Við nánari skoðun komu í ljós smávægilegar breytingar í kviðarholi sem nauðsynlegt er að bregðast strax við.

Vegna þessa var ákveðið að ég skyldi hefja lyfjameðferð í upphafi þessa árs, í sex skipti, sem ég hef þegar hafið. Það eru vissulega vonbrigði að til þessa hafi þurft að koma en allt fram á þennan dag benti allt til þess að ég hefði komist yfir þennan hjalla.

Ég brenn enn fyrir að vinna fyrir almenning og hugsjónir mínar. Þessi þröskuldur sem ég þarf að yfirstíga á næstu vikum breytir engu þar um. Núna stend ég frammi fyrir þessu verkefni og þarf að klára það. Það er engin ástæða til annars en að vera bjartsýn.

Ég mun halda áfram að sinna mínum störfum eins og ég hef gert.

Bestu kveðjur

Ólöf