Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, hyggst bjóða sig fram í prófkjöri flokksins í Reykjavík. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ólöfu. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins mun hún stefna á 2. sætið í prófkjörinu.

Í tilkynningunni segir að Ólöf hafi tekið sæti á Alþingi efir þingkosningarnar 2007, en þá hafi hún verið í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.

„Ég er mjög þakklát fyrir það traust sem ég fékk í Norðausturkjördæmi fyrir síðustu kosningar.  Ég kom ný á lista flokksins eftir afgerandi stuðning í prófkjöri.  Breyting hefur  nú orðið á högum  fjölskyldunnar á þann veg, að við erum nú flutt úr kjördæminu. Aðalaðsetur fjölskyldu minnar er nú í Reykjavík, þar sem ég er fædd og uppalin og mér finnst því eðlilegt að ég leggi verk mín í dóm sjálfstæðismanna í Reykjavík,” segir Ólöf í tilkynningunni.

Í tilkynningunni segir ennfremur: „Á Alþingi hefur Ólöf gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum, m.a. setið í allsherjarnefnd og umhverfisnefnd, auk þess að vera varaformaður samgöngunefndar.  Hún  situr í háskólaráði Háskólans á Akureyri, stjórn Handverks og hönnunar, er formaður í nefnd á vegum fjármálaráðuneytis um kynbundin launamun og fleira.

Ólöf Nordal er gift Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóra Alcoa á Íslandi. Þau eiga fjögur börn á skólaaldri.“