Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, sem tók við málefnum ferðaþjónustunnar um áramótin, hefur ráðið Ólöfu Ýrr Atladóttur, framkvæmdastjóra vísindasiðanefndar, ferðamálastjóra frá 1. janúar 2008 til næstu fimm ára. Samgönguráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar í nóvember síðastliðin að því er kemur fram í frétt ráðuneytisins.

Ólöf Ýrr hefur að baki fjölbreytt nám í stjórnsýslu- og þróunarmálum, náttúruvísindum og íslensku í Háskóla Íslands og University of East Anglia. Ólöf Ýrr hefur góða þekkingu á alþjóðamálum og hefur lagt sérstaka áherslu á breytingastjórnun. Hún hefur reynslu á sviði ferðaþjónustu úr landvörslu og fararstjórn, og var einnig forstöðumaður Kviku, fræðagarðs við Mývatn. Ráðuneytið telur hana best fallna  til að vera leiðandi í mikilvægum breytingum á skipulagi, stjórnsýslu og fjármögnun ferðaþjónustunnar á Íslandi. Hún er einnig til þess fallin að vera málsvari opinberrar stefnumótunar og samstarfs opinberra aðila í þágu atvinnugreinarinnar, svo og nýjunga í markaðsstarfi á innlendum og erlendum vettvangi.

Staðfestir umsækjendur um starf ferðamálastjóra voru 50 talsins. Á grundvelli fyrirliggjandi gagna voru 20 umsækjendur kallaðir til viðtals. Þrír þeirra þóttu öðrum fremur hafa þá menntun, starfsreynslu og faglegan bakgrunn, sem krafist var samkvæmt auglýsingu til að gegna starfi ferðamálastjóra. Ráðherra valdi Ólöfu Ýrr úr síðasttalda hópnum með tilliti til forystuhæfileika og markmiðs jafnréttislaga.

Ferðamálastjóri veitir Ferðamálastofu forstöðu og ræður annað starfsfólk stofnunarinnar. Á Ferðamálastofu er alls um 20 starfsmenn en stofnunin rekur fimm skrifstofur innanlands og utan. Hún fer með framkvæmd ferðamála undir yfirstjórn ráðuneytisins. Ferðamálastjóri situr fundi ferðamálaráðs.

Samkvæmt lögum um skipan ferðamála nr. 73/2005 eru verkefni Ferðamálastofu einkum:

Útgáfa leyfa í ferðaþjónustu, skráning á starfsemi og eftirlit með að skilyrðum fyrir þeim sé fullnægt. Þróunar-, gæða- og skipulagsmál ferðaþjónustu, m.a. framkvæmd ferðamálastefnu, umhverfis- og fræðslumál, miðlun upplýsinga, svæðisbundin þróun og alþjóðlegt samstarf. Markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustu.