Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að gengistrygging fjárhæða í lánssamningi sem Flugastraumur ehf gerði við SP-Fjármögnun um kaup á dráttarvél hafi verið ólögmæt. Samningurinn var gerður árið 2006

Í samningnum var kveðið á um gengistryggingu fjárhæða. Slík gengistrygging telst vera ólögmæt ef um er að ræða lánssamning en lögmæt ef um er að ræða leigusamning, enda banna vaxtalög ekki gengistryggingu í leigusamningum. Í málinu var deilt um hvort samningurinn væri fjármögnunarleigusamningur eða lánssamningur, og hvort gengistryggingin teldist af þeim sökum lögmæt eða ólögmæt.

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að samningurinn sé lánssamningur og að gengistrygging fjárhæða sé því ólögmæt. Í tilkynningu frá Landsbankanum segir ljóst er að þessi dómur hafi áhrif á mat á því hvort sambærilegir samningar hjá Landsbankanum teljist vera leigusamningar eða lánssamningar með ólögmæta gengistryggingu. Landsbankinn muni fara vandlega yfir rökstuðning Hæstaréttar og meta hversu víðtækt fordæmisgildi dómsins sé.  Í kjölfarið muni samningar, sambærilegir þeim samningi sem deilt var um í málinu, verða endurreiknaðir.