Bjórframleiðandinn Ölvisholt Brugghús ehf., er komið í þrot. Var búið lýst gjaldþrota með úrskurðum héraðsdóms Suðurlands uppkveðnum 30. júlí 2010. Samkvæmt upplýsingum af vef síðu Lögbirtingarblaðsins er skiptafundur ákveðinn föstudaginn 29. október 2010. Er skorað á alla þá, sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu eða eigna í umráðum þess, að lýsa kröfum sínum fyrir skiptastjóra í búunum fyrir 19. október.