Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) opnaði ásamt Nýherja í gær sýningu á ljósmyndum íslenska Ólympíuliðsins sem tóku þátt í leikunum í Kína í ágúst.
Keppendur og aðstoðarfólk þess tóku myndir af því sem fyrir augu þess bar í Peking, þar sem leikarnir voru haldnir. Markmiðið var að fanga þá stemmningu sem var á leikunum og daglegt líf íbúa borgarinnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍSÍ.
ÍSÍ og Nýherji, sem er umboðsaðili Canon á Íslandi, ákváðu að verðlauna fyrir bestu myndina. Fjölmargir keppendur og aðrir innan Ólympíuhópsins sendu myndir í keppnina.
Sérstök dómnefnd valdi eina mynd sem bar af þeim sem bárust í keppnina. Þá mynd tók Árni Már Árnason, sem keppti fyrir hönd Íslands í 50m skriðsundi.
Myndin er af Jakobi Jóhanni Sveinssyni félaga hans í sundlandsliðinu.
Dómnefndina skipuðu: Golli (Kjartan Þorbjörnsson) ljósmyndari á Morgunblaðinu og Halldór J. Garðarsson, vörustjóri Canon neytendavara hjá Nýherja.
Í texta dómnefndar segir: „Kröftug mynd með flotta en um leið einfalda uppbyggingu. Sjónarhornið er skemmtilegt en um leið blekkjandi. Það tekur skoðandann smá stund að átta sig á hvort myndin er tekin úr sundlauginni og upp eða af bakkanum og niður í laugina. Ólympíumerkið á upphandleggnum er síðan punkturinnn yfir i-ið, flott staðsett í myndinni."
Það var Erling Ásgeirsson frá Nýherja sem afhenti Þorvaldi Árnasyni, bróður Árna Más, verðlaunin ásamt Ólafi E. Rafnssyni, forseta ÍSÍ. Árni Már stundar nám í Bandaríkjunum og var fjarverandi í dag. Í verðlaun hlaut Árni Már Canon EOS 450D myndavél með EF-S 18-55 3.5-5.6 linsu.
Ljósmyndasýningin verður opin í Café easy / kaffiteríu ÍSÍ við Engjaveg 6 fram til áramóta.