Starf sveitarstjóra Húnaþings vestra var auglýst laust til umsóknar um miðjan júní, 30 umsóknir bárust en þrír drógu umsókn sína tilbaka. Umsóknarfrestur rann út 30. júní og er listi umsækjenda mjög fjölbreyttur á honum má finna rútubílstjóra, viðskiptafræðinga, og ferðamálafræðing, auk Þóreyjar Eddu Elísdóttur sem hefur farið þrisvar á Ólympíuleikana en vinnur sem verkefnastjóri. Feykir greinir frá þessu.
Hér er listi umsækjenda í heild sinni:
Aðalsteinn J. Halldórsson, stjórnsýslufræðingur
Auðunn Bjarni Ólafsson, alþjóðamarkaðsfræðingur
Drífa Jóna Sigfúsdóttir, viðskiptafræðingur
Einar Kristján Jónsson, gæðaeftirlitsmaður
Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur
Eirný Valsdóttir, ráðgjafi
Friðþjófur Ó. Johnson, fasteignasali
Guðmundur I Gunnlaugsson, rútubílstjóri og oddviti
Guðný Hrund Karlsdóttir, verkefnastjóri
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir, stjórnmálafræðingur
Gunnar Kristinn Þórðarson, nemi
Jón Pálmi Pálsson, ráðgjafi
Jónas Pétur Hreinsson, markaðsráðgjafi
Kolbrún Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Kristinn Dagur Gissurarson, viðskiptafræðingur
Kristinn Hugason, stjórnsýslufræðingur
Lárus Páll Pálsson, viðskiptafræðingur
Ólöf Guðmundsdóttir, ráðgjafi
Óskar Már Ásmundsson, forstöðumaður
Páll Línberg Sigurðsson, ferðamálafræðingur
Ragnar Þorgeirsson, sparisjóðsstjóri
Sigríður Hjaltadóttir, heilbrigðisfulltrúi og fjármálastjóri
Snorri Finnlaugsson, fjármálastjóri
Steingrímur Hólmsteinsson, viðurkenndur bókari
Sverrir Berg Steinarsson, ráðgjafi
Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri
Þórey Edda Elísdóttir, verkefnastjóri