Ómar Özcan hefur gengið til liðs við Íslensk verðbréf sem sérfræðingur í verðbréfamiðlun.

Á árunum 2012 til 2015 starfaði Ómar í eigin viðskiptum hjá Arion banka í fjárfestingum og með viðskiptavakt á innlendum hluta- og skuldabréfum. Á árunum 2009 til 2011 starfaði hann í fyrirtækjaráðgjöf hjá Íslandsbanka og H.F. Verðbréfum.

Hann starfaði hjá Straumi fjárfestingarbanka á árunum 2007 til 2008 í eigin viðskiptum við fjárfestingar í innlendum sem og erlendum hlutabréfum ásamt því að halda utanum viðskiptavakt á innlendum hlutabréfum. Áður hafði Ómar starfað í verðbréfamiðlun hjá MP fjárfestingabanka í erlendri hlutabréfamiðlun frá upphafi árs 2006.