Eggert Herbertsson, framkvæmdastjóri Omnis, og Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkiskaupa, undirrituðu í dag rammasamning um tölvubúnað. Fram kemur í tilkynningu að samningurinn er gerður í kjölfar útboðs vegna notendabúnaðar, miðlægs búnaðar, netbúnaðar, notendahugbúnaðar og kerfishugbúnaðar. Stóðst Omnis kröfur Ríkiskaupa í öllum þessum flokkum og er fyrirtækið eitt af fimm sem geta boðið búnað í öllum þessum flokkum.

Haft er eftir Eggerti í tilkynningunni að samningurinn sé ánægjuleg viðurkenning sem styrki stoðir fyrirtækisins til lengri tíma litið enda hið opinbera stærsti kaupandi á þessu sviði á landinu. Um leið sé ríkið kröfuharðasti kaupandinn.

„Við vonum að stofnanir og fyrirtæki ríkisins nýti sér það sem við höfum að bjóða í sölu og þjónustu á tölvubúnaði, enda getur fyrirtækið boðið eitt mesta úrvar tölvubúnaðar á landinu. Einnig er það gæðastimpill á starfsemi fyrirtæksins að gera svona víðtækan samning við allar ríkisstofnanir og fjöldan allan af sveitarfélögum“.

Omnis er aðili að tveimur öðrum rammasamningum, í rekstrarvörum fyrir prentara og ljósritunarvélar og almennri tækniþjónustu.

Fyrirtækið hefur undanfarin misseri verið að hasla sér völl á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land til viðbótar við starfsemi félagsins á Vesturlandi og á Reykjanesi. Starfsmenn félagsins eru í dag um 40 talsins.