Sænska kauphöllin OMX hefur sent út yfirlýsingu að samrunaviðræður hafi ekki átt sér stað við aðrar kauphallir en Kauphöll Íslands.

Yfirlýsingin kemur í kjölfar fjölmiðlaumræðu um málið sem hefur átt sér stað í dag, en greint var frá því í morgun að OMX hefði áhuga á að kaupa hluti í kauphöllum í Mið- og Austur Evrópu.