Færeyska olíufélagið Atlantic Petroleum kemur nýtt inn í Úrvalsvísitöluna við opnun markaða á morgun, 20. ágúst 2009. Alfesca hf. verður tekið úr OMXI6 Úrvalsvísitölunni eftir lokun markaða í dag, 19. ágúst vegna yfirtökutilboðs í félagið frá 26. júní 2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en sem kunnugt er fara um átta félög í samstarfi með um 93% hlut í félaginu. Aðrir hlutar verða innleystir von bráðar.

Ný samsetning OMXI6 Úrvalsvísitölunnar verður eftirfarandi: Atlantic Petroleum P/F, Bakkavör Group, Føroya Banki, Icelandair Group, Marel Food Systems og Össur.