Heildarvelta í Kauphöll Íslands var 2.776 milljarðar sem jafngildir 11,2 milljarða veltu á dag. Rúm 98% veltunnar var með skuldabréf og er því meðal dagsveltan með skuldabréf tæpir 11 milljarðar.
Þetta kemur fram í ársyfirliti Kauphallarinnar en í upphafi árs hóf Kauphöllin að reikna nýja Úrvalsvísitölu, OMXI6, og lækkaði hún um 18,5% á árinu en Heildarvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um 14,7% á sama tíma.
Tvær atvinnugreinavísitölur hækkuðu á árinu, vísitala heilbrigðisgeira um 55% og vísitala nauðsynjavara um 30%.
Á skuldabréfamarkaði var MP Banki með mestu hlutdeildina eða 32%. Næstir koma Íslandsbanki með 28% og NBI með 14%. Á hlutabréfamarkaði var það Arion banki (áður Kaupþing) sem var með mestu hlutdeildina eða 28% en í kjölfarið fylgdu MP Banki með 18% og Saga Capital með 16% hlutdeild.
Á skuldabréfamarkaðnum voru mest viðskipti með ríkisskuldabréf eða fyrir 1.647 milljarða en þar á eftir fylgja íbúðabréfin með 928 milljarða veltu. Í árslok höfðu 64 útgefendur alls 189 flokka skuldabréfa skráða í Kauphöllinni.
Í töflunni hér að neðan má sjá veltu með skuldabréf eftir „veltulistum/flokkum“ og einnig þau fimm skuldabréf sem mest viðskipti voru með ásamt ávöxtunarkröfu þeirra.
Velta eftir tegund í milljónum króna:
- Ríkisbréf 1.646.727
- Íbúða- og Húsnæðisbréf 928.418
- Ríkisvíxlar 123.447
- Skuldabréf fyrirtækja 13.190
- Skuldabréf sveitarfélaga og LSS 6.106
- Skuldabréf, Erlend 5.452
- Skuldabréf banka og sparisjóða 1.035
- Skuldabréf lánastofnana 562
- Alls 2.725.239
Veltumestu skuldabréf:
- Flokkur Heildarvelta 2009 Ávöxtunarkrafa
Hæsta Lægsta Árslok Br., pkt.
- RIKB 19 0226 429.112.506.439 9,70% 7,01% 7,88% -185
- RIKB 13 0517 347.497.207.433 10,79% 6,86% 7,44% -337
- RIKB 10 1210 320.181.315.828 13,03% 6,03% 7,57% -553
- HFF150224 274.233.237.894 6,03% 3,65% 3,81% -61
- HFF150644 247.733.301.366 4,89% 3,64% 3,79% -29
Mesta veltan með bréf Marels
Þá kemur fram að af hlutabréfum voru mest viðskipti með bréf Marels eða fyrir 14 milljarða. Magn viðskipta með hlutabréf Marels var reyndar meira í ár en í fyrra, eins og sjá má í töflunni hér að neðan, og magn viðskipta með hlutabréf Össurar var að sama skapi lítið breytt frá fyrra ári.
Veltutölur í milljónum króna:
- Félag Heildarvelta 2009
- MARL 14.228.510.370
- A 9.311.868.976 (afskráð á árinu)
- OSSR 9.026.669.592
- BAKK 8.651.614.739
- STRB 4.074.752.333 (afskráð á árinu)
- ICEAIR 3.023.140.335
Kauphöllin segir skuldabréfamarkaðinn á árinu 2009 hafa skilað góðri ávöxtun til fjárfesta og til að mynda hækkaði vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára verðtryggð skuldabréf um 18,5% á árinu, vísitala fyrir 5 ára verðtryggð skuldabréf um 17,7% og vísitala 5 ára óverðtryggðra skuldabréfa hækkaði um 21,8%.