Kauphöllin tilkynnti í dag niðurstöður endurskoðunar á OMX Iceland 6 vísitölunni, OMXI6, sem gerð er tvisvar á ári.

Samsetning vísitölunnar mun verða óbreytt frá núverandi samsetningu og því munu félög í OMXI6 vísitölunni vera sem áður:

Atlantic Petroleum P/F, Atlantic Airways, BankNordik P/F, Icelandair Group hf., Marel hf. og Össur hf.

Endurskoðuð samsetning tekur gildi mánudaginn 3. janúar, 2011.

OMX Iceland 6 vísitalan er Úrvalsvísitala NASDAQ OMX Iceland og er samsett af þeim sex félögum sem mest viðskipti eru með á NASDAQ OMX Iceland. Vægi félaga í OMX Iceland 6 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði og er samsetning hennar endurskoðuð tvisvar á ári.