Fasteignamarkaður - Myndir
Fasteignamarkaður - Myndir
© BIG (VB MYND/BIG)
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 1. júlí til og með 7. júlí 2011 var 121. Þar af voru 93 samningar um eignir í fjölbýli, 20 samningar um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 3.115 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,7 milljónir króna, samkvæmt Þjóðskrá sem safnar upplýsingum um viðskipti á fasteignamarkaði.

Ef rýnt er í gögn aftur í tímann sést að fjöldi samninga á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki verið svo mikill síðan í desember 2007, ef undan er skilin þriðja vika marsmánaðar sl. Þá voru 125 samningar þinglýstir.