Samkomulag hefur náðst um að önnur endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) verði tekin fyrir í framkvæmdastjórn sjóðsins. „Stefnt er að því að endurskoðunin verði rædd í stjórninni 16. apríl næstkomandi. Að endurskoðuninni lokinni yrði til reiðu þriðji áfangi lánafyrirgreiðslu AGS að fjárhæð 20 milljarðar króna (105 milljónir SDR, jafnvirði 159 milljóna Bandaríkjadala)," segir í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

Á vef efnahags og viðskiptaráðuneytisins segir að íslensk stjórnvöld hafi sent sjóðnum endurnýjaða viljayfirlýsingu (e. Letter of Intent) í samræmi við reglur sjóðsins. Í henni sé lýst þeim árangri sem þegar hafi náðst við að draga úr áhrifum bankahrunsins. Yfirlýsingin lýsi einnig næstu skrefum efnahagsáætlunarinnar sem leggja muni frekari grunn að efnahagsbata. Hún verði birt í heild þegar endurskoðunin hafi verið afgreidd í stjórn sjóðsins.

„Á undanförnum vikum hefur verið unnið að því að fá endurskoðun samstarfsáætlunarinnar afgreidda í stjórn sjóðsins, nú síðast með fundum efnahags- og viðskiptaráðherra með framkvæmdarstjóra og stjórnarmönnum sjóðsins í Washington á miðvikudaginn," segir á vef viðskiptaráðuneytisins og vísað þar til fundar Gylfa Magnússonar ytra.