Önnur umræða um Icesave-ríkisábyrgðina á Alþingi verður varla fyrr en í fyrsta lagi á þriðjudag, að sögn Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis. Nefndardagar verða á Alþingi á morgun og á mánudag.

Frumvarpið um Icesave-ríkisábyrgðina er á forræði fjárlaganefnar Alþingis. Efnahags- og skattanefnd  þingsins og utanríkismálanefnd fjalla þó einnig um málið og veita umsagnir til fjárlaganefndar.

Ekki náðist í Guðbjart  Hannesson, formann fjárlaganefndar þingsins, við vinnslu þessarar fréttar.