Stjórn SPRON hefur borist tilkynning frá Rögnvald Othar Erlingssyni, þess efnis að hann hafi ákveðið að hætta í varastjórn félagsins frá og með  deginum í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en engar frekari skýringar eru gefna á úrsögn Rögnvalds.

Í síðustu viku sagði Birkir Baldvinsson sig einnig úr varastjórn SPRON og er Rögnvaldur því annar aðilinn sem segir sig úr varastjórninni á viku millibili.