Opin Kerfi Group hf. hagnaðist um 318 fyrstu sex mánuði ársins. Hagnaður fyrir skatta nemur 336 milljónum króna.

Hagnaður fyrri helming árs 2007 nam 59 milljónum króna.

Heildar rekstrartekjur félagsins á fyrri helmingi ársins 2008 voru 4,8 milljarðar króna, samanborið við 6,2 milljarða á sama tímabili árið 2007.

Allar tekjur félagsins eiga nú uppruna sinn í erlendri starfsemi, en árið 2007 var það hlutfall 75%.

Eiginfjárhlutfall félagsins stóð í 50,2% þann 30.júní og arðsemi eigin fjár var 11,8% sem er hækkun á milli ára.