Ólafur Örn Nielsen hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Opinna Kerfa. Á síðastliðnu ári komu nýir fjárfestar að félaginu og Ragnheiður H. Harðardóttir tók við sem forstjóri þess. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að mótun á stefnu félagsins til framtíðar og er ráðning Ólafs sögð liður í því að styðja við skipulagsbreytingar sem felast í því að Opin Kerfi geti unnið í enn nánara samstarfi við fyrirtæki um rekstur upplýsingatæknimála.

Ólafur hefur starfað á sviði upplýsingatækni í 15 ár við hugbúnaðarþróun, markaðsmál, stjórnun og rekstur fyrirtækja. Hann hefur síðustu misseri starfað sem stjórnunarráðgjafi með áherslu á stefnumótun og stafræna framtíð fyrirtækja. Ólafur var framkvæmdastjóri hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtækisins Kolibri á árunum 2015-2019 en þar áður kom hann að stofnun hönnunarfyrirtækisins Form5.

Þar áður var hann vefmarkaðsstjóri WOW air og hugbúnaðarsérfræðingur hjá mbl.is. Þá hefur Ólafur setið í stjórnum samtaka upplýsingatæknifyrirtækja og ÍMARK, félags markaðsfólks á Íslandi.

„Það er mikill heiður að vera treyst fyrir þessu hlutverki. Það er spennandi áskorun að koma inn í Opin Kerfi á þessum tímapunkti en fyrirtækið, eins og markaðurinn allur, er að ganga í gegnum miklar umbreytingar sem er mestu leyti drifin áfram vegna tækniþróunar. Opin Kerfi ætlar sér stóra hluti og ég hlakka til að takast á við þá áskorun að skrifa nýja kafla við þá rótgrónu sögu sem félagið býr yfir, með því afburðafólki sem hjá félaginu starfar,“ segir Ólafur Nielsen nýr aðstoðarforstjóri Opinna Kerfa.

Ragnheiður Harðardóttir, forstjóri Opinna Kerfa segir mikinn liðsstyrk í að fá Ólaf til starfa. „Opin Kerfi hefur markað sér skýra stefnu sem náinn samstarfsaðili fyrirtækja í rekstri upplýsingatæknimála og ráðning Ólafs er liður í að styðja við þá vegferð. Okkar markmið er að styðja markvisst við fyrirtæki í öllum atvinnugeirum að takast á við breytingar á sviði upplýsingatækni til að efla samkeppnishæfni sína.“ segir Ragnheiður.

30 ára gamalt fyrirtæki

Opin Kerfi sérhæfir sig í rekstri upplýsingatæknimála og hafa starfað í rúm 30 ár á þeim markaði  og hefur að skipa sérfræðingum á flestum sviðum upplýsingatækni með langa reynslu af ráðgjöf, rekstri, þjónustu og innleiðingu lausna hjá flestum af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins ásamt stórum erlendum viðskiptavinum.

Opin Kerfi er einn af eigendum, Reykjavik Data Center, hátæknigagnavers sem er í uppbyggingu á Korputorgi. Gagnaverið er samstarfsverkefni Opinna Kerfa, Sýn, Korputorgs og Reiknistofu bankanna.