Jón Þór Þorleifsson og Bjarni Gaukur Sigurðsson hafa stofnað fyrirtækið Svarti smalinn ehf. Tilgangur fyrirtækisins er rekstur hótels sem er í Biskupstungum skammt frá Geysi.

„Þetta heitir Mengi Kjarnholt. Þarna var gamall sveitabær sem við erum búin að breyta. Þetta var reyndar gistiheimili áður, en við erum búin að taka þetta algjörlega í gegn,“ segir Jón Þór í samtali við Viðskiptablaðið.

Jón Þór segir að hótelið sé tíu herbergja. Þar af eru tvö fjölskylduherbergi sem rúma fjóra, en hin átta herbergin eru tveggja manna.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .