Þrátt fyrir að unnið sé að sölu á Kaupás, móðurfélag Krónunnar og Nóatúns, þá eru breytingar í burðarliðnum. Til stendur að opna nýja Krónuverslun í Vallakór í Kópavogi í lok þessa mánaðar. „Það er svona myndarleg Krónubúð,“ segir Jón Helgi Guðmundsson, núverandi eigandi Kaupás, aðspurður um stærð á þessari nýju verslun.

Eins og fram hefur komið hefur Stefnir, dótturfélag Arion banka, lýst yfir áhuga á því að kaupa Kaupás. Stefnir er sjóðastýringarfyrirtæki með um 415 milljarða króna í virkri stýringu.