Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, mun formlega opna nýtt Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur KPMG og ReonTech á morgun kl. 16:00.

Verkefnið er samstarfsverkefni og leggur KPMG til 350 m2 húsnæði í Borgartúni 27 á hagstæðum kjörum auk ýmissar annarrar aðstöðu og ráðgjafar.

ReonTech ber ábyrgð á daglegum rekstri og sér um að velja inn nýsköpunarfélög. Viðtökur hafa verið frábærar og er húsið orðið svo til fullt, en meðal þeirra félaga sem eru komin með aðstöðu má nefna, Radiant Games, Gracipe, IcelandUnlimited, Búngaló og Authenteq.

„KPMG telur mikilvægt að styðja við nýsköpun og vill styrkja frumkvöðla til sinna starfa. Þess vegna ákváðum við að kosta fjármunum í þetta nýja Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur og vonumst til að með því geti KPMG lagt sitt af mörkum til frumkvöðlastarfsemi. Við teljum mikilvægt að fyrirtæki gangi á undan með góðu fordæmi og KPMG ber því sjálft kostnað af þessu, en verkefnið nýtur ekki neinna opinberra styrkja,“ segir Hlynur Sigurðsson, hluthafi hjá KPMG.

„Nýja Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið gefur frumkvöðlum góða aðstöðu til að sinna starfsemi sinni. Það er mjög mikilvægt að nýsköpunarfyrirtæki búi við öruggar aðstæður og geti einbeitt sér sem best að starfsemi sinni. ReonTech mun eftir þörfum aðstoða þau fyrirtæki sem sækjast eftir að komast að. Þetta hefur mælst vel fyrir og húsnæðið er svo til fullt, en eitthvað pláss er þó eftir,“ segir Elvar Þormar, framkvæmdastjóri hjá ReonTech.