Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra undirritaði í dag samstarfssamning milli Kína og Íslands um gagnkvæma viðurkenningu á eftirliti á hollustuháttum í viðskiptum á sviði matvæla á milli landanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu .

Af hálfu Kína undirritaði Mei Kebao aðstoðarráðherra samninginn en ráðuneyti hans fer með yfirstjórn gæðaeftirlits matvæla í Kína. Fríverslunarsamningur Íslands og Kína tók gildi 1. júlí 2014 og mun samkomulagið vera forsenda fyrir útflutningi íslenskra fyrirtækja á matvælum til Kína og opnast þannig möguleikar til enn frekari viðskipta, að því er fram kemur í tilkynningunni.